SKRAPP Í SMÁSTUND…

…KEM EKKI AFTUR

33vikur 3 dagar júlí 9, 2006

Filed under: ólétta,ferðalög,flutningar,helgar — aslapals @ 12:19 pm

já já allt að gerast… það er bara ekki hægt að blogga jafn mikið á sumrin og maður myndoi gera á veturnar…. ok

núna er farið að styttast í þessu hjá mér, tæpar 7 vikur eftir fyrir þá sem ekki kunna að reikna. Við Lilli erum orðnir ágætis vinir eftr þessa miklu og nánu samveru, en ég fer nú samt að hlakka svolítið til að klippa á naflastrenginn…. hann er nefnilega ekki alveg nógu hlýðinn þessi elska, og á það til að meiða mömmu sína og hætta því ekki þó ég skammi hann fyrir það… þetta er ekki nógu gott og greinilegt að  það þarf að taka sig á í uppeldinu á þessum bæ þegar hann kemur í heiminn.

núna er hugsanleg grindargliðnun farin að þjaka mig ansi mikið, þreytan er að gera mig vitlausa, Lilli er orðinn svo stór að það er lítið pláss eftir inni í mér fyrir loft í lungum eða mat í maga eða annan óþarfa… svo er ég líka svolítið illa haldin af ” æ-æ- ó -ó-aumingja-ég” sjúkdómnum sem getur verið a total bitch þegar hann kemst af stað…  En Lilli er hress, virðist ennþá hafa nóg pláss tli að sprikla og snúa sér á alla kanta, hann er voða duglegur að stækka segir ljósan mín og hún er voða ánægð með okkur mæðginin á allann hátt svo ég hef nú ekki yfir neinu stórkostlegu að kvartra.  á morgun ætla ég að skella mér í meðgöngunudd og vona að það vinni eitthvað gegn grindarverkjunum… það verður gaman að sjá.

síðan síðast erum við búin að vera ýmislegt að bralla. við fórum til dæmis austur á Klaustur í sumarbústaðinn, alltaf fínt að chilla þar,  svo fórum við næsgtu helgi á eftir til Víkur þar sem Siggi kom og hitti okkur á föstudagskvöldið. þá skelltum við okkur í menninguna á Halldórskaffi, eitthvað voru samt allir hinir menningarsnauðir þetta kvöld því við vorum ein þar inni að undanskildum tveim túristaum, tveim kresí sumarbúsgtaðakellum og fjórum krökkum sem komu og fóru með geisladisk runninn beinustu leið undan rifjum hins vonda sjálfs með sér. En við létum það ekkert á okkur fá, við þurfum ekkert annað fólk til að skemmta okkur, við erum svo skemmtileg sjálf :)   það var hellst tónlistin hjá krökkunum sem angraði enda var maður óðum að missa viljann til að lifa þegar Tryggvi ( a.k.a mister bartender) freslaði oss frá illu.  Þegar barinn lokaði fór ég svo með strákana í pílagrímsferð á ” rúntinn” og það kom í ljós að Siggi hafið aldrei rúntað almennilega í víkinni svo hann uppgötvaði margt nýtt og skemmtilegt á þeirri ferð.  kveldið endaði svo eins og svo mörg önnur við eldhúsborðið heima. en á meðan á þessu stóð voru unglingarnir á heimilinu á kreysí fylleríi úti á tjaldstæðum með einhverju gufu rugluðu brimbretta liði sem fjölmennti í víkina um helgina til að surfa og halda tónleika…

restin af helginni fór nú að mestu leyti í fótboltagláp, smiðavinnu ( kallarnir smíðuðu, konurnar horfðu á… og hlógu ) og nokkrar heimsóknir, til dæmis til ömmu og til Einsa Og Söndru í nýja, soon to be- ótrúlega flotta húsiuð þeirra.

þegar heim var komið eftir síðustu helgi sáum við framm á það að nú yrðum við að fara að taka okkur á í að koma okkur almennilega fyrir.  það gegngur frekar hægt þegar einn er óléttur og annar vinnur ótrúlega mikið og horfir á fótbolta þess á milli…  svo við ákváðum að bjóða í mat til að setja nú smá pressu á þetta allt saman. svo úr varð að Bjössi,Siggi og Unnur mætttu galvösk á föstudagskvöldið og átu drukku og voru glöð, ( og við vorum það líka)  endaði þetta með hinu mesta rauðvíns sulli og við sátum í kósíheitum í nýja fína sófanum okkar við nýja fína stofuborðið okkar, vel framm yfir háttatíma hjá gömlum og óléttum konum… í gær skrapp Fjalar svo austur á Klaustur til að taka þátt í menningarviðburði sem nefdur er stígvélafótbloti… tli að fá nánari útskýringar á því fyrirbæri mæli ég með gestabókinni á www.klaustur.is  og er hann enn ókominn heim svo nú sit ég eins og klessa uppi í rúmi og ætla mér að vera þar eitthvað áfram…

ég er aðeins farin að kíkja á barnaföt… og það er bara svo gaman!!! ég keypti svolítið að göllum og samfellum og öðru dóti í sverige í vor  svo er ég búin að kíkja í geymsluna hjá Ásu og á  háaloftið hjá mömmu og er komin með fullt fullt af fötum hingað heim sem ég er núna að þvo og flokka og svona… gegt gaman :)   hann Lilli verður sko ekki fatalaus þegar hann kemur í heiminn.  við erum ennþá ekkert farin að kíkja á stærri hlutina sem við þurfum til að vera búin undir komu hans og höfum eiginlega ákveðið að vera ekkert að því fyrr ení  Ágúst… ( sem minnir mig á það, Fjalar er búinn að finna nafn á afkvæmið: Ágúst Nóvember…. I think I´m going to have to put my foot down :) )

well nóg kmoið í bili held ég… myndirnar fara alveg að koma, hóst :)   að lokum kemur hugvekja frá Ljósmóður .is

Vika 34

Nú mun barnið nýta sér allt það pláss sem það mögulega getur og þrýsta á allt sem það getur, til dæmis lungun.  Ef þér finnst erfitt að ná andanum getur hjálpað að sitja eða standa.  Ef þú hefur áhuga á fara á námskeið til undirbúnings fæðingunni eða foreldrahlutverkinu þá er ekki seinna vænna en að drífa sig.  Það er líka tímabært að byrja að taka til föt á barnið.

Barnið er ansi upptekið við að undirbúa sig fyrir lífið utan legsins.  Það æfir sig að sjúga, gerir öndunaræfingar, blikkar augunum, snýr höfðinu, tekur utan um það sem það nær í (hina höndina og naflastrenginn) og réttir úr fótunum.  Húð barnsins er að verða mjög mjúk og ekki eins gegnsæ.  Barnið vegur nú um 2,1 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 30 sm.

chiao :)

 

30 vikur og 3 dagar júní 18, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 3:27 pm

jæja halló halló… eins og fréttaþyrstir aðdáendur hafa eflaust tekið eftir þá bloggaði ég í síðustu viku og er að gera það aftur núna. ( einhver sagði að það væri nógu fréttnæmt til að blogga um það) 

síðan síðast hefur margt gerst í lífi mínu. ef við byrjum á Sunnudaginn þá hélt ég upp á ammlið mitt með gríðarlega fjölmennu og elegant kaffiboði á mánastígnum. að kaffiboðinu loknu héldum við svo áfram að fagna með því að byrja að flytja dótið okkar upp í Fífulind.  flutningar urðu nú í lágmarki þann daginn en á mánudaginn var nóg að gera. við byrjuðum daginn á að velja og kaupa ísskáp, þvottavél, þurkara ogstofuborð.  svo sendi ég Fjalar upp eftir til að taka á móti dótinu sem átti að senda til okkar um dagin en sjálf skellti ég mér í meðgöngunudd. þvílík og önnur eins snilld. bara það að fá að liggja á maganum var fullkomlega hverrar krónu virði, það er nefniloega notaður svona spes nuddbekkur sem er með götum fyri rmallann og brjóstinn svo maður getur legið alveg eins og skata, just the way I like it.  að vísu tók nuddarinn ansi hraustlega á mér svo að ég var alveg eftir mig í nokkra daga eftir þetta en núna er ég eins og nýsleginn túskildinugur. þegar ég var búin í nuddinu skellti ég mér heim í heiðardalinn og þar fann ég Fjalar sem var búinn að taka á móti Rúminu okkar og koma því upp í svefnherberginu… jei. svo ég var bara memm í því að bíða og bíða og bíða og bíða eftir restinni, um 5 leytið var mér að hætta að lítast á blikuna þar sem ekkert var kmoið en þá komu allt í einu 3 sendibílar í einu. einn með rafmagnstækin, annar með sófasettið og sá þriðji með borðstofuborðið og stólana… og þá var kátt í höllinni hölinni höllinni… en við höfðum nú engann tíma til að dást að nýju húsgögnunum okkar, því við áttum miða á tónleika með Roger Waters um kveldið og vorum að verða allt of allt og sein eins og maðurinn sagði :)   svo við drifum okkur og sáum sko ekki eftir því jafnvel þó ég hafi verið vægast sagt þreytt í fótunum að þeim loknum. brilliant tónleikar….

á Þriðjudaginn stóðum við svo í stórflutningum með hjálp kerru og margra góðra vina, á og miðvikudaginn og fimmtudaginn kláruðum við svo að tæma mánastíginn og þrífa hann… það er óhætt að segja að lilli hafi verið farinn að refsa móður sinni all svakalega fyrir öll lætin, eftir heila viku af fullri vinnu og aksjón framm á nótt að henni lokinni… föstudagskvöldið rann upp og núna þurftum viðekkert að gera nema ganga frá í Fífulindinni, og það var nú ákvðið að vera ekkert að flýta sér að því en við komum samt helling í verk strax þá.

laugardagurinn var langþráður því þá var sofið út…. halelúja!!!  skemmst er frá því að segja að ég svaf til klukkan eitt og velltist svo í rúminu til kl þrjú. en þá komu Tryggvi og Palli í heimsókn, þeir ætluðu að skella sér ásamt Fjalari og pabba og Auði á handboltaleikinn. við lilli treystum okkur ekki til að fara á hann svo við horfðum bara á hann í sjónvarpinu í staðinn, og hvöttum strákana óspart til dáða… ég hélt að krakkakjáninn ætlaði að tryllast þegar ég var byrjuð að tapa mér í æsingnum hérna… bara gaman.

núna er allt að komast í sitt venjulega horf … það eru kassar og drasl úti um allt og við erum að reyna að finna staði fyrir allt draslið okkar og svona, en það er nú bara gaman.  Lilli er farinn að síga all verulega í enda er nú farið að síga á seinni hlutann á þessari nánu samveru okkar  bara tæpar 10 vikur eftir omg! hérna kemur smá fróðleikur til ykkar allra um 31. vikuna frá í boði Ljósmóður.is

Nú gæti komið í ljós slit á húðinni á maganum en það er ekkert víst.  Nú stendur kúlan alltaf meira og meira út í loftið og þess vegna þarftu að gæta að jafnvæginu.

Barnið getur blikkað eða lokað augunum t.d. þegar sterkt ljós lýsir á kúluna.  Heilastarfsemi barnsins er mjög virk.  Barnið er yfirleitt sofandi þegar þú ert vakandi en vakandi þegar þú ert sofandi.  Barnið vegur nú um 1,5 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 27,5 sm.

hérna kemur tilraunaverkefni… þetta er mynd af mér á 24 viku.. hef ekki tekið almennilega mynd síðan, en ef þessi heppnast vel þá kemur önnur von bráðar

dscf5299.JPG

 

29 vikur 3 dagar – ammli flutningar og margt fleyra júní 11, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 11:19 am

hæ hæ

 já ég veit… þetta er alls ekki nógu vel að verki staðið hjá mér :( nú verð ég að fara að hisja upp um mig blogg buxurnar ( eða eitthvað í þá áttina) en veriðið góð við mig ég á ammli í dag :)

við fengum íbúðína okkar afhenta þann 1. júní stundvíslega klukkan 12 á hádegi. síðan þá hefur mestur frítíminn farið í að mála, pússa, lakka, þrífa, pakka og verlsa húsgögn og annað smálegt. núna er þetta allt að koma og við ætlum að byrja að flytja inn húsgögnin á morgun… gleði gleði gleði :)  

 Lilli er alltaf samur við sig, stækkar og stækkar og svo er hann voða duglegur að æfa sig í fótbolta og ætlar að verða eins klár og pabbi sinn, nema hann sé náttla stelpa og þá ætla ég helst að giska á fimleika, eða jafnvel ballett.  móðir hans er mjög sátt við þessi uppátæki hans og hlær jafnvel upphátt þegar mest gengur á í mallanum. hann hefur ennþá lítið viljað gera af því að sparka í aðra en móður sína, tildæmis hefur pabbanum einstaka sinnum tekist að fá spark í sig eftir mikla þolinmæði… hann hefur meðal annars tekið upp á því að ræða við afkvæmið í gegnum mallan og kalla ” Luke I am your father”… bara svona til að hafa það á hreinu :)   En lilli minn sparkar sko ekki eftir pöntunum,bara svo það sé alveg á hreinu, ( ég ætla´rétt að vona að aumingja barnið verði ekki eins þrjókst og ég… ).

heilsufarið á mér er allt  við það sama þessa dagana, þreytan er farin að taka sinn toll og ég fer alltaf fyrr og fyrr í rúmið, nema náttla þegar ég er í einhverju flutningastandi og má ekkert vera að því að sofa, þá er ég bara voða voða voða þreytt á daginn.  smávægilegir verkir svona hér og þar eru farnir að gera vart við sig, smá í bakinu, smá í mjöðmunum, smá í öxlunum smá í fótunum og svo framvegis.  Fjalar minn var nú snöggur að breggðast við því umkvörtunnarefni og ´bjóða mér að skella mér í meðgöngunudd í Laugum.  það á semsagt að fara formlega fram á morgun og ég hlakka svo til……. it will be awsome!

svona rétt að lokum ætla ég að segja ykkur hvað hún vinkona mín Ljósmóðir .is sagði mér í þessari viku :

Vika 30

Brjóstin á þér eru enn að stækka.  Þú gætir byrjað að finna fyrirvaraverki þó að flestar konur finni ekki fyrir þeim fyrr en á síðustu vikunum.  Raunverulegir hríðverkir standa yfir í u.þ.b. eina mínútu og koma á fimm mínúntna fresti eða minna og standa yfir í a.m.k. klukkustund.  Fyrirvaraverkir standa styttra yfir eru ekki eins sárir og koma óreglulega.

Á næstu vikum mun barnið bæta á sig fitu í meira mæli en áður.  Húðin er ennþá svo krumpuð svo það er nóg pláss fyrir meiri fitu undir húðinni.  Fósturhárin fara nú að minnka og augun hafa opnast alveg.  Hiksti barnsins verður meira áberandi.  Barnið vegur nú um 1,3 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 27 sm.
ps: ég er ekki ennþá búin að finna út úr því hvernig á að setja myndir inn á þetta blogg en þegar þar að kemur mun ég sýna ykkur bumbumyndir… its huge people

 

vika 26 a.k.a JÚRÓVISJÓNVIKA! maí 15, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 9:32 pm

JEI!  loksins er komið að júróvisjón eina ferðina enn.  ég er að hafa það af að komast í stuð, er búið að taka lengri tíma en oft áður að fíla lagið en þetta er allt að koma. er jafnvel orðin nokkuð stolt af stelpunni og vona að hún eigi eftir að meikaða þarna úti. hún er nú langt komin með það svosem það er ekki það. það var tími til komin að einhver íslendingur þorði að hrista svolítið upp í þessu, það hefur ekki gerst síðan ´97 hjá Palla og ég verð að segja að þessi hristingur er öllu meiri og áhrifaríkari :)   ég mæli með að menn kíkji á esctoday og lesi fréttirnar um hana og þá sérstaklega viðbröggðin við þeim… aðrir keppendur fá svona 30 -50 komment að meðaltali, slefa kanski upp í 100 ef þeir eru júrósvisjón súperstjörnur eins og Carola, en Silvía er komin með yfir 400 viðbrögð! og þvílík unun að lesa þetta… maður sér bara helgislepjuna leka af fólki sem á ekki orð yfir því hvað hún er mikill dóni og að hún skuli voga sér að vanhelga helgidóiminn þeirra… djöst vonderfúll!!!!  ég er svosem ekkert svo bjartsýn á að hún komist upp úr undanúrslitunum en í fyrsta skipti skiptr það líka akkúrat engu máli. henni er algjörlega búið að takast það sem hún ætlaði sér nú þegar.

 eníveis… af óléttumálum er allt gott að frétta, lili er voða sprækur nema kanski helst til óhress með hvað mamma hans hefur mikið að gera þessa dagana og má lítið vera að því að slappa af og hvíla sig, en það finst honum skemmtilegast að gera.  í kvöld erum við að fara að skoða íbúðina okkar til að ath. hvað þarf að gera fyrir parkettið og spá í litum og svona bara gaman… svo eru bara flutningar á næsta leyti… semsagt eintóm gleði.

til að enginn verði fyrir vonbrygðum skal ég skella inn hérna smá pistli frá ljósmóður.is um 26. viku  vesgú:

Hugsaðu vel um þig.  Mundu að þú þarft að hvílast vel en einnig að hreyfa þig.  Ef þú gengur um á háum hælum þá er ekki seinna vænna að hætta því núna. 

Á næstu vikum mun barnið bæta á sig fitu og vöðvamassa.  Með hverri viku sem nú líður aukast möguleikar á að barnið lifi af ef það fæddist fyrir tímann.   Þó að augun séu enn lokuð getur barnið greint birtu og nú getur það einnig fundið lykt.  Það getur nú einnig greint mismunandi raddir.  Það vegur nú um 820 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 23 sm.

 

24. vika maí 10, 2006

Filed under: afmæli,ólétta,ferðalög,helgar — aslapals @ 8:34 pm

ok núna er þetta farinn að verða  svona hálfsmánaðarlegt blogg.. sem er ekkert verra en hvað annað býst ég við.  allavega núna eru komnar 24 vikur, það þýðir að það eru 16 eftir, eða 4 mánuðir.  þetta hefur ljósmóðir.is um málið að segja á þessu stigi málisins:

Hægðatregða er einn meðgöngukvillunum sem gæti byrjað að gera vart við sig.  Breytingar á blóðrásarkerfi geta valdið því að blóðþrýstingurinn lækkar á þessu tímabili og því gætir þú fundið fyrir svima.  Þetta getur einnig gerst þegar þú liggur á bakinu vegna þess að legið sem alltaf verður þyngra og þyngra þrýstir þá á stóru bláæðina í kviðarholinu sem flytur blóð til hjartans frá neðri hluta líkamans.  Ef þú finnur fyrir svima þegar þú liggur á bakinu, skaltu snúa þér á aðra hvora hliðina.  Efri brún legsins er nú á móts við naflann. Þegar þú þreifar á barninu geturðu fundið fyrir hinum ýmsu líkamshlutum.

Nú eru skilningarvit barnsins að vakna til lífssins. Eftir að það er fætt gæti það munað eftir lögunum sem þú ert að syngja fyrir það núna. Einhvern daginn þegar þú ert alveg vitlaus í skapinu er barnið þitt sama sinnis og sparkar allt hvað af tekur. Það er mögulegt að börn sem fæðast við 24 vikna meðgöngu geti lifað af fái þau notið umönnunar á nýburagjörgæslu en það er þó alls ekkert öruggt í þeim efnum.  Stærsta vandamálið er að lungun eru ekki nógu þroskuð og þess vegna þarf fyrirburinn aðstoð við öndun.  Barnið er ennþá mjög grannt en fer að bæta á sig úr þessu.  Það vegur nú um  630 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 21 sm.

 Núna er farið að sjást mun meira á mér og bumban er aðeins að byrja að síga í, sérstaklega þegar ég er búin að standa lengi , það endaði með því að ég hringdi í ljósuna mína á milli skoðanna og spurði hana út í verkina, hún kannaðist við þetta allt saman og mælti með því að ég keypti mér belti sem styður við bumbuna svo núna geng ég um rosalega smart en ægilega ánægð með mig og mitt  belti. ( það er innanklæða ef einhver var að velta því fyrir sér :) ).  þreytan er alltaf söm við sig og lýtur ekki út fyrir að ætla að minka neitt á næstunni… en það er svosem alveg hægt að lifa með því.

síðan síðast er ýmislegt búið að vera um að vera á litla heimilinu í hafnarfirðinum. húsmóðirin gerði heiðarlega tilraun til að drepa sig um þarsíðustu helgi. það var nenilega sýningin hans pabba í gangi þá helgina og þið vitið nú hversu auðvelt ég á með að sitja kyrr og horfa á þegar aðrir eru í brjálaðri aksjón…. sem semsagt það var unnið í 12 tíma á sólarhring  fyrir utan skóla og vinnuna á leikskólanum.  en það var samt mjög skemmtilegt allt saman.

síðasta helgi var ekki sú léttasta sem ég hef lifað heldur. Reyndar var ég bara heima að tjilla á föstudaginn en Fjalar skellti sér út á lífið, ég fór samt seint að sofa og svaf illa þangað til hann kom heim ( sem var seint). Svo hélt Auður konan hans pabba upp á afmælið sitt með pompi og prakt. það var svaka partý en þar sem við vorum þunnur og ólétt ( getiði hvor var hvor) þá fórum við heim á frekar sómasamlegum tíma. Á sunnudaginn var svo ekkert gefið eftir, en þá laggði ég land undir fót til að þess að vera viðstödd stórviðburð í Víkinni, nebbla Raularann margfræga, fyrir þá sem ekki vita hvað það er: there are no words, svo ég ætla ekkert að vera að fara nánar út í það núna.

þessi helgi var svo frekar fjörleg líka. saumaklúbbur hjá mér á föstudaginn, opið hús í vinnunni og óvissuferð á eftir á laugardaginn, kjaftablaðaur hjá pabba og Auði fram eftir öllu á sunnudaginn. Fjalar fór nebbla með pabba sínum til Manchester á ótbolta leik svo við lilli vorum bara ein hiema. bara ef einhver er að vellta því fyrir sér þá er ég ekkert að tala af mér hérna, ég veit ekki ennþá hvors kyns það er en við ákváðum bara að kalla það lilla þangað til annað kemur í ljós.

já semsagt Sundurlausasti pistill allra tíma… ta ta!! það styttist í flutninga svo það verður nóg að gera á heimilinu á næstunni, og lilli verður eflaust í svaka stuði :)

jæja ég lofa að láta ekki líða svona langt á milli næst, svo þetta verði ekki svona langt

 

22.vika apríl 20, 2006

Filed under: afmæli,ólétta,ferðalög,helgar — aslapals @ 11:23 am

samkvæmt síðustu talningu eru liðnar 22 vikur af meðgöngunni í dag, það þýðir að það eru 18 eftir… þetta segir ljósmóðir .is:

Þú gætir fundið fyrir einhverjum meðgöngukvillum s.s. bakverkjum, sinadrætti, æðahnútum, fjörlegum draumum eða verið með þrota í tannholdinu. Mesta þyngdaraukningin verður á öðrum þriðjungi meðgöngunnar.  Fóstrið vegur nú tiltölulega lítið í samanburði við annað sem er nauðsynlegt, þ.e. aukið blóðmagn, legvatn, stærra leg, stærri brjóst og auka fituforða.

Fóstrið hreyfir sig mikið fer í kollhnís og virðist vera hvað fjörugast einmitt þegar þú slakar á. Innra eyrað er nú á stærð við innra eyra fullorðinnar manneskju.  Nú eru komnar augabrúnir og hár á höfuðið.  Lungun eru byrjum að framleiða efni sem heitir „surfactant“ en það er er efni sem er nauðsynlegt til að lungun geti starfað eðilega.  Fóstið vegur um 460 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 19 sm.

jamm svo mörg voru þau orð.  spörkin eru nú aðeins farin að koma, ég finn svolítið fyrir þeim núna snemma á morgnanna og seint á kvöldin, aðallega þegar ég er komin upp í rúm. frekar gaman :) í fyrradag fór ég að finna fyrir svolitlum verkjum, sem ég endaði á að spyrja ljósmóðurina mína út í. eftir langorðar lýsingar á fyrirbærinu greip hún framm í fyrir mér og sagði " ætli þetta séu ekki  bara það sem við köllum togverki"  og þar með var það alveg ljóst. orðið " togverkir" lýsir þessum verkjum nákvæmlega. meðöðrum orðum bara vaxtaverkir, ekkert við því að gera nema hugsanlega vera í einhverju sem styður vel við bumbuna þegar ég stned lengi eða geng mikið. gaman að því

Páskarnir voru fínir, vði byrjuðum helgina á að kíkja í ammli til afa gamla á Selfossi, þar hitti ég fjölskyldumeðlimi sem ég hafði suma hverja ekki hitt í 7 ár. þar af fjögur ný börn.  það var fínt, alltaf gaman að hitta fólk sem maður hefur ekki hitt lengi og heyra hvað það hefur verið að gera af sér á meðan :)   um kvöldið drifum við okkur svo austur á Klaustur þar sem Haukur ( pabbi Fjalars) bauð okkur út að borða á Hótelinu. þar fengum við hinn fínasta mat og góða kvöldstund, þrátt fyrir frekar lágt hitastig.

Föstudagurinn fór svo í kaffiboð hjá ömmu hans Fjalars og Elínu frænku hans auk þess sem við litum inn hjá hinum og þessum öðrum ættingjum í leiðinni. um kvöldið komu Þær amma og Elín svo í mat í sumarbústaðinn til okkar.  Allt saman mjög hefðbundi páskastöff.  

Laugardaguinn rann upp skýr og fagur og hafði í för með sér fjallaferð. Þ.e Fjalar, Hrefna og Haukur fóru á fjöll, ég treysti mér eiginlega ekki til að sitja í tíu tíma í hossandi bíl og skellti mér því á undan Fjalari til víkur.  í Vík voru menni í óða önn að vakna eftir partí gærkvöldsinns, og ástandið á heimilinu ekki upp á marga fiska. efri hæðin full af Laugvetningum sem komu austur til að djamma með Guðna bróður, en hann átti einmitt ammli á laugardaginn ( 15 apríl). Um kvöldið stóð mikið til. Þar sem Guðni átti ammli varð að halda upp á það að asjálfsögðu. Það vildi svo skemmtilega tli að bróðir hennar mömmu er sjómaður og gefur okkur stundum humar. hann hefur reyndar gert svolítið mikið af því undanfarið og nú var svo komið að frystirinn hjá múttu var orðinn yfirfullur af humar….eruði búin að fatta hvernig þessi saga endar??? það var semsagt mega humarveisla um kveldið og allir átu mjög svo yfir sig, og sumir bruggðust jafnvel reiðir við þegar í ljós kom að það var eftirréttur ( ekki ég samt, ég fúlsa aldrei við eftirrétti:) ) kvöldið endaði svo á mikilli spilamennsku ( catan-ég vann)  og enn meiri áfengisdrikkju

Sunnudagur: Páskadagur, frekar klassískt allt saman, páskaegg um morguninn, göngutúr í góða veðrinu, heimsóttum Guðrúnu og Steinar þar sem þau voru að byggja pall fyirr utan hjá sér og meðöll börnin í götunn ihoppandi á trampolíninu hjá sér :)   svo kíktum við á Einsa og Söndru þar sem þau voru að taka eldhúsið hjá sér í gegn. um kvöldið var svo matur hjá Ömmu. allt saman ljómandi gott. Kvöldið endaði svo í einni alsherjar sófaklessu. Einsi og Sandra björguðu okkur frá bráðum sófadauða með því að koma í heimsókn og við gátum setið og kjaftað langt fram yfir háttaíma.

þessa dagana er frekar brjálað að gera hjá mér, þar sem ég er í því eins mikið og ég treysti mér til að hjálpa Pabba og Auði við að koma sýningunni þeirra á koppinn. sýningin heitir sumar 2006 og er haldin í laugardalshöll um helgina ef einvherjum vantar afþreygingu um helgina. hún verður rosalega flott og fullt af fínum skemmtiatriðum og svona. og svo verð ég þar náttla :) .

vell verð að þjóta. skyldan kallar

 

hinn margumtalaði 19.viku póstur apríl 11, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 4:12 pm

þar sem ég var nú búin að lofa þessu og svona þá ætla ég að láta hann fylgja með hérna for the fun of it 

ljósmóðir.is segir: Ef til vill ertu orðin meiri um þig aftan til og mittið ekki eins greinilegt. Þú mæðist og svitnar meira við áreynslu en áður en það stafar af efnaskiptabreytingum. Fóstrið hefur ennþá nóg pláss til að hreyfa sig en ef þú hefur enn ekki fundið hreyfingar þá máttu búast við því hvenær sem er. Vöðvar fóstursins hafa þroskast meira og fóstrið er að safna á sig brúnum fituforða sem hjálpar því að halda á sér hita. Það vegur nú um 260 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 15 sm. síðan síðast er ég búin að skella mér til sverige, þar sem ég verslaði mjög mjög mikið af allskyns skemmtilegum fötum á mig og krílið. Það var verulega hressandi að heimsækja Byrndísi og Sigurjón, Önnsku, Billu og alla hina. á laugardagskvöldið var haldið sérstakt partý " mér til heiðurs" ( já já segjum það bara) hjá önnsku, þar sem voru saman komnir nokkrir gamlir félagar, og einhverjir nýjir líka. þar var meðal annars prufað að syngja í sing star… mjög skemmtilegur leiku, og hefði verið mun skemmtilegri ef ég hefði kunnað hann almennilega og ekki verið kvefuð :) svo var í meiginatriðum verslað svo lengi sem einhverjar búðir voru opnar til að versla í þeim… gaman að því og mín kom talsvert fátækari til baka, en jafnframt með talsvert meira af pæjulegum óléttufötum í töskunn og svolítið af dúllulegum bebis fötum líka…. annað markvert í ferðinni var spilaenska við eldhúsborðið á lyklakróki og vöffluboð á kjammanum. semsagt nokkuð góð og afslöppuð ferð. Ég afrekaði það meira að segja að verða vitni að þeim stórmerka atburðið þegar vorið kom á skáni… jamm það kom á meðan ég stoppaði þar í þrjá daga, með þeim afleiðingum að mig langaði akkúrat ekkert að fara heim í kuldann á klakanum, nema náttla til að hitta Fjalar minn að sjálfsögðu :) . í svíþjóð varð ég líka fyrir því óláni að tapa heilum klukkutíma af lífi mínu sem ég kem ekki til með að fá nokkurntíman aftur… haldið þið ekki að ófétin hafi breytt yfir í sumartíma á meðan ég var á staðnum… þannig að eini sénsinn minn til að fá þennan klukkutíma aftur er að fara til svíþjóðar í kringum 25. október þegar þeir breyta aftur í vetrartíma og sækja helv. klukkutímann minn aftur!… ú gott plan. allavega, óléttu málin eru öll í góðu lagi, eftir því sem ég best veit. hreyfingar eru enn í lágmarki en ég held að mér hafi tekist í morgun ( með góðann slatta af vilja og dash af ímyndunnarafli með mér í liði) að finna fystu alvöru hreyfinguna…. er samt ekki alveg visss, af hverju var manni aldrei sagt þetta í kynfræðslu í gamla daga?? ég héllt alltaf að þegar konur væru óléttar þá færu börnin bara allt í einu að sparka á fullu einn góðann veðurdag og það væri ekkert vafamál hvort þau væru að því eða ekki…. reyndar veit ég alveg að barnið er að sparka á fullu, ég er bara ekki alveg viss um hvort ég get fundið fyrir því….. góð saga. um daginn kom ljósmyndari í vinnuna, til að taka bekkjarmyndira f öllum deildunum. og mér athyglissjúklingunum sjálfum tókst að sjáfsögðu á augabraggði að láta alla myndatökuna snúast um mig. þannig fór ég að: um leið og ljósmyndarinn var búinn að stilla upp ÖLLUM 30 stk. af börnum á deildinni ( sem tók alveg 15-20 mínútur) og var alveg að verða tilbúinn að fara að smella af….. fékk ég aðsvif og vað að setjast niður svo allir gætu beðið eftir mér JÁ!!!! svo tókst mér líka með þessu að fá að liggja í leti í vinnunni í næstum því klukkutíma á eftir á meðan ég jafnaði mig… mæli með þessu, geggja fjör. En ef einhver er að hafa áhyggjur af mér þá er þetta nú allt í læ svosem, og ég er ennþá á lífi ( þó kvefið sé reyndar að gera heiðarlega tilraun til að drepa mig í þessum töluðum).

 

svona á að gera þetta!! apríl 11, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 3:47 pm

já já þetta er allt að gerast…. blogger að meikaða svo ég er bara farin takk fyri bless!  hérna verður aðsetur mitt á næstunni núna er 21 vikan að líða undir lok og þetta er skoðun ljósmóður.is á því :Vera kann að þú fáir brjóstsviða eða meltingatruflanir. Augu fóstursins eru ennþá lokuð og verða það þar til í 27. viku.  Fóstrið getur nú heyrt hljóð að utan.  Heilinn hefur verið að þroskast mikið en yfirborð hans er ennþá slétt ólíkt því sem við þekkjum. Fóstrið vegur nú um 390 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 18 sm 

hreyfingarnar láta ennþá eitthvað á sér standa en ég var í sónar í gær þar sem fram kom hugsanleg skýring á því máli… fylgjan liggur nefnilega beint framan á maganum á mér og virkar eins og þessi líka fíni dempari, en ég hef mínar grunsemdir um að þetta sé að byrja að koma núna. þreytan er þegar farin að segja svolítði til sín hjá mér, alltaf jafn hraust! svo eru líka smá bakverkir og verkir í mjöðmum og annað farið að gleðja mig.

mér skilst að barnið geti núna heyrt utan að komandi hljóð (nema áðurnefnd staðsetning fylgjunnar blokki það líka) svo núna syng ég fyrir það í tíma og ótím, ljómandi gott að fá svona afsökun fyrir því að vera alltaf gólandi ” ég er sko að syngja fyrir barnið mitt” :)
allavega… pákar framundan, stefnt er á mikla reisu til fjarlægs staðar er nefnist vestur skaftafellssýsla, og er ætlunin að heimsækja alla hellstu byggðarkjarna hennar yfir hátíðarnar.

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.