SKRAPP Í SMÁSTUND…

…KEM EKKI AFTUR

33vikur 3 dagar júlí 9, 2006

Filed under: ólétta,ferðalög,flutningar,helgar — aslapals @ 12:19 pm

já já allt að gerast… það er bara ekki hægt að blogga jafn mikið á sumrin og maður myndoi gera á veturnar…. ok

núna er farið að styttast í þessu hjá mér, tæpar 7 vikur eftir fyrir þá sem ekki kunna að reikna. Við Lilli erum orðnir ágætis vinir eftr þessa miklu og nánu samveru, en ég fer nú samt að hlakka svolítið til að klippa á naflastrenginn…. hann er nefnilega ekki alveg nógu hlýðinn þessi elska, og á það til að meiða mömmu sína og hætta því ekki þó ég skammi hann fyrir það… þetta er ekki nógu gott og greinilegt að  það þarf að taka sig á í uppeldinu á þessum bæ þegar hann kemur í heiminn.

núna er hugsanleg grindargliðnun farin að þjaka mig ansi mikið, þreytan er að gera mig vitlausa, Lilli er orðinn svo stór að það er lítið pláss eftir inni í mér fyrir loft í lungum eða mat í maga eða annan óþarfa… svo er ég líka svolítið illa haldin af ” æ-æ- ó -ó-aumingja-ég” sjúkdómnum sem getur verið a total bitch þegar hann kemst af stað…  En Lilli er hress, virðist ennþá hafa nóg pláss tli að sprikla og snúa sér á alla kanta, hann er voða duglegur að stækka segir ljósan mín og hún er voða ánægð með okkur mæðginin á allann hátt svo ég hef nú ekki yfir neinu stórkostlegu að kvartra.  á morgun ætla ég að skella mér í meðgöngunudd og vona að það vinni eitthvað gegn grindarverkjunum… það verður gaman að sjá.

síðan síðast erum við búin að vera ýmislegt að bralla. við fórum til dæmis austur á Klaustur í sumarbústaðinn, alltaf fínt að chilla þar,  svo fórum við næsgtu helgi á eftir til Víkur þar sem Siggi kom og hitti okkur á föstudagskvöldið. þá skelltum við okkur í menninguna á Halldórskaffi, eitthvað voru samt allir hinir menningarsnauðir þetta kvöld því við vorum ein þar inni að undanskildum tveim túristaum, tveim kresí sumarbúsgtaðakellum og fjórum krökkum sem komu og fóru með geisladisk runninn beinustu leið undan rifjum hins vonda sjálfs með sér. En við létum það ekkert á okkur fá, við þurfum ekkert annað fólk til að skemmta okkur, við erum svo skemmtileg sjálf :)   það var hellst tónlistin hjá krökkunum sem angraði enda var maður óðum að missa viljann til að lifa þegar Tryggvi ( a.k.a mister bartender) freslaði oss frá illu.  Þegar barinn lokaði fór ég svo með strákana í pílagrímsferð á ” rúntinn” og það kom í ljós að Siggi hafið aldrei rúntað almennilega í víkinni svo hann uppgötvaði margt nýtt og skemmtilegt á þeirri ferð.  kveldið endaði svo eins og svo mörg önnur við eldhúsborðið heima. en á meðan á þessu stóð voru unglingarnir á heimilinu á kreysí fylleríi úti á tjaldstæðum með einhverju gufu rugluðu brimbretta liði sem fjölmennti í víkina um helgina til að surfa og halda tónleika…

restin af helginni fór nú að mestu leyti í fótboltagláp, smiðavinnu ( kallarnir smíðuðu, konurnar horfðu á… og hlógu ) og nokkrar heimsóknir, til dæmis til ömmu og til Einsa Og Söndru í nýja, soon to be- ótrúlega flotta húsiuð þeirra.

þegar heim var komið eftir síðustu helgi sáum við framm á það að nú yrðum við að fara að taka okkur á í að koma okkur almennilega fyrir.  það gegngur frekar hægt þegar einn er óléttur og annar vinnur ótrúlega mikið og horfir á fótbolta þess á milli…  svo við ákváðum að bjóða í mat til að setja nú smá pressu á þetta allt saman. svo úr varð að Bjössi,Siggi og Unnur mætttu galvösk á föstudagskvöldið og átu drukku og voru glöð, ( og við vorum það líka)  endaði þetta með hinu mesta rauðvíns sulli og við sátum í kósíheitum í nýja fína sófanum okkar við nýja fína stofuborðið okkar, vel framm yfir háttatíma hjá gömlum og óléttum konum… í gær skrapp Fjalar svo austur á Klaustur til að taka þátt í menningarviðburði sem nefdur er stígvélafótbloti… tli að fá nánari útskýringar á því fyrirbæri mæli ég með gestabókinni á www.klaustur.is  og er hann enn ókominn heim svo nú sit ég eins og klessa uppi í rúmi og ætla mér að vera þar eitthvað áfram…

ég er aðeins farin að kíkja á barnaföt… og það er bara svo gaman!!! ég keypti svolítið að göllum og samfellum og öðru dóti í sverige í vor  svo er ég búin að kíkja í geymsluna hjá Ásu og á  háaloftið hjá mömmu og er komin með fullt fullt af fötum hingað heim sem ég er núna að þvo og flokka og svona… gegt gaman :)   hann Lilli verður sko ekki fatalaus þegar hann kemur í heiminn.  við erum ennþá ekkert farin að kíkja á stærri hlutina sem við þurfum til að vera búin undir komu hans og höfum eiginlega ákveðið að vera ekkert að því fyrr ení  Ágúst… ( sem minnir mig á það, Fjalar er búinn að finna nafn á afkvæmið: Ágúst Nóvember…. I think I´m going to have to put my foot down :) )

well nóg kmoið í bili held ég… myndirnar fara alveg að koma, hóst :)   að lokum kemur hugvekja frá Ljósmóður .is

Vika 34

Nú mun barnið nýta sér allt það pláss sem það mögulega getur og þrýsta á allt sem það getur, til dæmis lungun.  Ef þér finnst erfitt að ná andanum getur hjálpað að sitja eða standa.  Ef þú hefur áhuga á fara á námskeið til undirbúnings fæðingunni eða foreldrahlutverkinu þá er ekki seinna vænna en að drífa sig.  Það er líka tímabært að byrja að taka til föt á barnið.

Barnið er ansi upptekið við að undirbúa sig fyrir lífið utan legsins.  Það æfir sig að sjúga, gerir öndunaræfingar, blikkar augunum, snýr höfðinu, tekur utan um það sem það nær í (hina höndina og naflastrenginn) og réttir úr fótunum.  Húð barnsins er að verða mjög mjúk og ekki eins gegnsæ.  Barnið vegur nú um 2,1 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 30 sm.

chiao :)

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.