SKRAPP Í SMÁSTUND…

…KEM EKKI AFTUR

36. vikur og 6 dagar ágúst 2, 2006

Filed under: Uncategorized — aslapals @ 2:30 pm

jæja já nú er heldur betur farið að styttast í þessu hjá okkur Lilla. bara þrjár vikur eftir ! JÆKS!!!! húsmóðirin er aðeins farin að panikka yfir því hvað gerist svo?!?!?  ekki alveg klár á því að ég sé tilbúin í það að halda annari manneskju á lífi sem er algj0rlega háð mér um að komast af…. ekki fyrir viðkvæma ;)   annars er ég orðin svo þreytt á þessu öllu saman að ég get bara ekki beðið lengur eftrir þessu, þetta er hluti af ” nature´s clever plan”  þ.e. þegar meður er búinn að ganga með í tæpa 9 mánuði langar manni svo mikið að þessu fari að ljúka að maður má ekkert vera að því að hugsa um það hvort maður sé tilbúin í móðurhlutverkið….

ég var í skoðun í morgun og mældist þá með hækkandi blóðþrýsting í fyrsta skiptið á meðgöngunni svo ég á að mæta aftur eftir 2 daga og láta mæla hann aftur… það er víst ekki mælt með of háum blóðþrýstingi á meðgöngunni :) svo það þarf að fylgjast voða vel með þessu öllu saman.  grindargliðnunin gamalkunna er á fullu swingi núna auk þess sem ég hef fengið stórskemtlegan óvæntann glaðning, nefnilega fullt af bjúg á afæturnar… svaka stuð. svo núna langar mig eiginlega ekkert að gera nema liggja uppi í rúmi og vorkenna mér… myndi örugglega gera það allann daginn ef ég hefði ekki Fjalar til að hvetja mig til dáða…

sumarfríiið okkar hefur verið mjög gott, við erum búin að vera talsvert fyrir austann, í afslöppun og djammi til skiptis, svo erum við líka búin að gera helling af okkur hérna innan dyra, hreiðrið fer alveg að verða tilbúið fyrir komu ungans í það :)   en núna höfum við sagt ferðalögum lokið í bili, og við er tekin hin heilaga afslöppun, eða eitthvað í þá áttina allavega. Verslunnarmannahelgin verður söguleg að þessu sinni því þetta verður í fyrsta sinn sem ég eyði henni í höfuðborginni, stefnt er á að kúra yfir sjónvarpinu alla helgin… sánds læk fön? 

allavega… hér er pistill vikunnar frá ljósmóður.is

Þú hefur líklega mikla þörf fyrir að vera í hreiðurgerð!  Margar konur finna hjá sér þörf fyrir að vera að þrífa allt hátt og lágt.  Passaðu þig bara á því að vera ekki að standa upp á stól eða tröppu alveg sama hversu mikið ryk þér finnst vera þarna uppi.  Mundu að það er mikilvægt að hvíla þig vel og að létt hreyfing s.s. stuttar gönguferðir eru af hinu góða.

Þegar þessi vika hefst er barnið fullburða þ.e.a.s. fullþroskað.  Fósturhárin eru að mestu leyti dottin af en fósturfitan er ennþá til staðar.  U.þ.b. 14 grömm af fósturfitu tapast nú á hverjum degi.  Í ristli barnsins er heilmikið af fósturhægðum.  Barnið vegur nú um 2,9 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 33 sm.

 þessi mynd sem ég setti inn hérna síðast var greinilega alger byrjendaheppni… svo það verða engar meiri myndir hérna :(   en ég er að vinna í því að koma mér upp myndasíðu einhverstaðar online svo það gæti verið að heppnin verði með mér þar… stay tuned

 

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.